Handavinna
Handavinna er mitt aðaláhugamál og prjónar eru mín uppáhaldsverkfæri. Ég hef prjónað frá því ég man eftir mér, bæði eftir uppskriftum og svo líka uppúr sjálfri mér. Á myndinni hér fyrir neðan er peysa sem ég prjónaði eftir uppskrift en notaði afganga sem ég átti og markmiðið var að nota allan léttlopann sem safnast hafði upp í gegnum árin. Það tókst næstum því!Garðrækt
Á sumrin stunda ég garðrækt af kappi og nýt þess að vera úti og sinna garðinum. Ég á líka mikið af inni plöntum og hugsa um þær eins og kostur er.
Heggurinn gleður mig með blómum sínum á hverju vori.
Útivist
Ég hef ferðast mikið innanlands sem utanlands og ég uni mér best fjarri alfaraleið.Nánari upplýsingar um mig