Dynjandi steypist vatnsmikill fram af Dynjandisheiði og fellur hann til sjávar í Dynjandisvog inn af Arnarfirði. Á leið sinni til sjávar myndar hann marga smærri fossa en þeir eru: Bæjarfoss, Hundafoss, Hrísvaðafoss, Göngumannafoss, Strompgljúfrafoss og Hæstahjallafoss.