Foss er orðið sem ég valdi mér. Hljómurinn í orðinu gefur til kynna vatnið sem fossar fram af fjallsbrúnum með ógnar krafti og dillandi kátínu. Það er ekki annað hægt en að verða glaður í námunda við þá dásemd. Viðfangsefnið er fossinn Dynjandi sem fellur fram af Dynjandisheiði. Í mínum huga er þessi foss haddur sjálfrar fjallkonunnar...