30. apríl 2017
Það nálgast miðnætti og nú tel ég mig vera búna að laga allt sem ég ætlaði að laga og þar með er síðan formlega komin í netheima. Endaði á að gera síðu með lokaverkefninu í fræðilega hlutanum, þetta er nokkurs konar “manifesto” fyrir þessa síðu. Þar með eru ritverkin orðin átta og nýti ég þá allar smámyndirnar á síðunni eins og ég ætlaði mér. Heildarfjöldi síða er þar með orðinn 72.
Póstaði síðunni á Facebook í dag, svona til að gera það raunverulegra fyrir mér að síðan væri tilbúin. Birti að gamni með borða sem ég bjó til en notaði ekki. Best að leyfa þessum borða að marka formleg lok verksins: Vefurinn sigurlaug.is er tilbúinn!