Ég hef mikinn áhuga á hvers konar handverki og þá sérstaklega prjónaskap. Á myndunum hér fyrir neðan eru nokkur sjöl sem ég hef gert á liðnum misserum. Nafn á sjali og höfundi uppskriftar er skráð fyrir neðan hverja mynd.

Nánar er hægt að fá upplýsingar um þessi sjöl á Ravelry síðunni minni: http://www.ravelry.com/projects/sigurlaug17 .

Hér er síðan mynd af syni mínum í peysu sem ég hannaði fyrir hann. Bæði munstur og uppskrift eru eftir mig. Hann bað um jólapeysu og jólapeysu fékk hann. 

Jólapeysa Jóns

Jóla-Jón í jólapeysu

Gagnlegar upplýsingar fyrir prjónatækni.