30. apríl 2017
Setti lit á bakgrunnslit á síður, til að tengja betur saman borðana efst og neðst og ramma síðurnar aðeins af. Valdi #f9f9f9 sem er ljós grár litur. Breytti litum í flekunum á aðalsíðu í #e0e0e0. Notaði þessa síðu til að meta litinn: http://www.color-hex.com/ .

Hef setið við í allan dag og lagað ýmislegt sem mér finnst betur mega fara. Setti meðal annars nýjar myndir á síðuna áhugamál>Ljósmyndun.

Fer að hætta þessu og segja þetta gott.