8. apríl 2017
Frídagarnir urðu tveir en í dag fór ég á Stafnes og myndaði Stafnesvita frá öllum hliðum. Var of nálægt vitanum og því erum myndirnar ekki nothæfar. Fer aftur á morgun og mynda vitann úr meiri fjarlægð. Liturinn á vitanum er fullkominn fyrir síðuna mína og brimið ómótstæðilegt. Myndaði líka fjöruna og brimið og setti inn smámyndir á forsíðuna. Nokkuð ánægð með þær og tek fleiri á morgun. Vonandi verður veðrið betra.