8. apríl 2017
Frídagarnir urðu tveir en í dag fór ég á Stafnes og myndaði Stafnesvita frá öllum hliðum. Var of nálægt vitanum og því erum myndirnar ekki nothæfar. Fer aftur á morgun og mynda vitann úr meiri fjarlægð. Liturinn á vitanum er fullkominn fyrir síðuna mína og brimið ómótstæðilegt. Myndaði líka fjöruna og brimið og setti inn smámyndir á forsíðuna. Nokkuð ánægð með þær og tek fleiri á morgun. Vonandi verður veðrið betra.
You are browsing archives for
Category: Dagbók
Dagbókin lýsir ferlinu við vefvinnuna.
Köngulóin í hvíld
6. apríl 2017
Ekkert ofið í dag, köngulóin í vefnum (ég) þurfti smá hlé, aðallega til að íhuga framhaldið.
Ninja form og öryggi á síðunni
5. apríl 201
Vann í gær við ýmis lítil verk á síðunni, til að samræma útlit og efni. Setti síðan inn síðu þar sem hægt er að senda mér póst. Þorbjörg benti mér á plugin sem heitir Ninja form og það virkar eins og ég vil hafa það (https://srd.wordpress.org/plugins/ninja-forms/).
Hef lítið komist í vefnað í dag, bætti þó við viðbót sem nefnist really-simple-ssl til að trygggja öryggi á síðunni (https://wordpress.org/plugins/really-simple-ssl) þannig að núna er slóðin https://sigurlaug.is virk og þeir sem slá inn sigurlaug.is verða sjálfkrafa færðir á öruggu síðuna.