Vefurinn okkar Maríu Bjargar Kristjánsdóttur í Nát 103 fékk eLearning verðlaun haustið 2002. Þessi verðlaun eru veitt af evrópska skólanetinu eða eSchola.
Við skráninguna kölluðum við verkefnið okkar: “Motivating Students in Studying Biology”. Þetta eru vefirnir sem við skráðum til keppni:
- Nát 103, haust 2001 (vefsíðan ekki lengur til)
- Nát 103, vor 2002
Þetta var vefurinn sem við vorum að vinna þegar við fengum verðlaunin:
Verkefnið okkar lenti fyrst í hópi 100 útvalinna af rúmlega 700 verkefnum sem voru skráð til keppni. Það út af fyrir sig þótti okkur mikill sigur. Seinna kom í ljós að verkefnið okkar var komið í hóp þeirra 16 bestu. Okkur var boðið að koma til Stokkhólms og vera viðstaddar afhendingu eLearning verðlaunanna. Verðlaunin voru afhent í gamla þinghúsinu í Stokkhólmi þann 21. nóvember 2002. Þar kom í ljós að okkar verkefni hlaut: The Digital Brain Award for Innovative Use of ICT in Science
Við María kynntum verkefnið okkar fyrir öðrum þátttakendum í Stokkhólmi. Áður höfðum við kynnt verkefnið okkar á UT ráðstefnu um vorið 2002.
Frétt Morgunblaðsins af verðlaununum, 25.11.2002
Frétt Morgunblaðsins af verðlaununum, 27.11.2002
Verðlaunin voru ávísun uppá 4000 evrur og viðurkenningarskjal.